Hugbúnaður sem virkar, frá hugmynd í notkun.

Við smíðum vefi, öpp og sérsniðin kerfi fyrir íslensk fyrirtæki. Yfir 20 ára reynsla, fast verðtilboð og beint samband við fólkið sem forritar.

Nýjar lausnir

Vefur, app eða sérsniðið kerfi. Við förum með hugmyndina alla leið í fullbúna vöru.

Eldri kerfi

Kerfið sem enginn þorir að snerta? Við tökum við því, höldum því gangandi og bætum það.

Endurskrif

Úrelt kerfi í nýjan búning. Þú færð greiningu, tillögu og tímaáætlun áður en verkið hefst.

Verkefnastjórnun

Skýr áætlun og gott yfirlit frá fyrsta degi, svo verkefnið klárist á réttum tíma.

Um okkur

Lítið fyrirtæki með mikla reynslu. Hjá okkur talar þú beint við fólkið sem vinnur verkið.

1707 ehf var stofnað árið 2022 af Ernu Kristjánsdóttur og Sigurjóni Inga Garðarssyni. Að baki eru áratugir í hugbúnaðarþróun og verkefnastjórnun, og þá reynslu nýtum við í hvert verkefni.

  • Í hugbúnaðarþróun síðan 1999
  • Í verkefna- og vörustjórnun síðan 2005
  • Frá fyrstu hugmynd og hönnun yfir í fullbúna vöru
  • Sérhæfing í C# og .NET bakendum, vefforritun og appforritun
  • Mikil reynsla af gervigreind (AI), bæði ráðgjöf og forritun

Markmiðið okkar er einfalt: ánægður viðskiptavinur. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, heiðarleg samskipti og samkeppnishæf verð. Við segjum þér hreint út hvað er skynsamlegt að gera, og hvað ekki.

Stærri verk vinnum við á föstu verðtilboði, svo þú veist frá byrjun hvað verkið kostar.

Segðu okkur frá verkefninu

Þjónusta

Hvort sem þú þarft nýtt kerfi, hjálp með það gamla eða einhvern til að halda utan um verkefnið, þá erum við rétta fólkið. Stærri verk vinnum við á föstu verðtilboði og minni verk í hagstæðri tímavinnu.

Nýjar hugbúnaðarlausnir

Vefkerfi, öpp, vefþjónustur og sérsniðin kerfi, smíðuð í traustri tækni (C#, .NET, SQL) sem endist. Ekkert verkefni er of stórt og ekkert of lítið.

Vefsíður fyrir fyrirtæki

Hraðar og snyrtilegar vefsíður sem virka jafn vel í síma og tölvu og finnast í leitarvélum. Sjáðu dæmi hér að neðan.

Gervigreind (AI)

Ráðgjöf og innleiðing á gervigreind, til dæmis með Claude. Við finnum hvar AI sparar tíma í þínum rekstri og smíðum lausnina.

Viðhald eldri kerfa

Við tökum við kerfum sem aðrir smíðuðu, lögum villur, bætum við virkni og höldum rekstrinum gangandi. Mikil reynsla af vefkerfum, vefþjónustum og bakendum.

Endurskrif eldri kerfa

Er gamla kerfið orðið dragbítur? Við greinum það, leggjum fram tillögu og tímaáætlun og skrifum það upp á nýtt í nútímalegri tækni.

Verkefnastjórnun

Yfir 20 ára reynsla af því að koma hugbúnaðarverkefnum í höfn. Við höldum utan um áætlun, forgangsröðun og samskipti svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum.

Starfsfólk

Þegar þú vinnur með 1707 vinnur þú beint með okkur. Engir milliliðir, bara reynt fólk sem ber ábyrgð á verkinu, með yfir 20 ára reynslu í forritun, ráðgjöf, verkefnastjórnun og hönnun.

Erna Kristjánsdóttir

Verkefnastjóri/Stjórnarformaður

Sigurjón Ingi Garðarsson

Forritun/Framkvæmdastjóri

Hafðu samband

Segðu okkur frá verkefninu. Við svörum fljótt, förum yfir þarfirnar með þér og gerum verðtilboð þér að kostnaðarlausu og án skuldbindinga.

Staðsetning:

Hvannalundur 4, 210 Garðabæ

Sími:

895 8854