Í Pilot

Snappy

Tímaskráning sem starfsfólkið nennir að nota. Starfsfólk stimplar sig inn og út á verk í símanum eða í vafranum. Stjórnendur sjá hvert tíminn fer, samþykkja leiðréttingar og hafa allt tilbúið fyrir reikningagerð.

Snappy: vinnustundir fyrirtækisins í vafra og stimpilklukkan í síma

Svona virkar Snappy

Komdu tímaskráningunni í lag á einum morgni.

1

Settu upp fyrirtækið

1707 setur fyrirtækið upp með þér: starfsfólk, viðskiptavini og verk. Hvert verk tilheyrir viðskiptavini og getur haft sitt eigið tímagjald.

2

Starfsfólkið stimplar sig

Einn smellur til að byrja á verki og annar til að hætta. Í símanum á staðnum eða í vafranum á skrifstofunni.

3

Þú yfirferð og samþykkir

Breytingar á tímum fara í samþykkt hjá stjórnanda. Þú sérð nákvæmlega hvað var unnið, fyrir hvern og hvenær.

Eiginleikar

Hannað fyrir fyrirtæki sem selja tímann sinn, og vilja fá borgað fyrir hann allan.

Stimplað með einum smelli

Inn og út á verk á augabragði. Aðeins eitt virkt verk í einu, svo tímarnir tvískrást ekki.

Vefur og app

Sama kerfið í vafra, í tölvunni og í símanum. App fyrir iOS og Android er á leiðinni.

Viðskiptavinir og verk

Haltu utan um tíma á hverju verki og hverjum viðskiptavini, með tímagjaldi fyrir reikningagerð.

Samþykktarferli

Starfsmaður óskar eftir leiðréttingu og stjórnandi samþykkir eða hafnar. Engar óvæntar breytingar.

Full breytingasaga

Hver breyting er skráð: hver, hvenær, og hvað breyttist. Ekkert hverfur.

Hlutverk og aðgangur

Starfsfólk sér aðeins sína tíma, stjórnendur sjá allt fyrirtækið. Innskráning með lykilorði.

Laun reiknuð

Dagvinna, eftirvinna og næturvinna eftir reglu fyrirtækisins, helgar og frídagar sér, neysluhlé dregið frá.

Excel og CSV

Launatímabilið flutt út með einu blaði á hvern starfsmann og samtölum, tilbúið fyrir launakerfið.

Launatímabil fyrirtækisins

Fyrirtækið segir hvaða dag mánaðarins launatímabilið hefst, og allt opnast á réttu bili.

Tilkynningar

Beiðnir og svör berast í appið og með tölvupósti, svo ekkert bíður óséð.

Fyrir starfsfólk

Allt sem starfsmaður þarf er í símanum, og það er ekki margt: stimpla sig, sjá sína tíma og biðja um leiðréttingu.

Stimpilklukkan: stimplað inn á Þakviðgerð, Laugavegur 12, liðinn tími 2:12

Stimplað með einum smelli

Einn smellur inn, annar út. Sé verkið bara eitt er það valið fyrir þig, og klukkan tifar á meðan.

Vinnustundirnar mínar: listi yfir eigin skráningar

Sínir tímar, og ekkert annað

Starfsmaðurinn sér hvað hann hefur unnið, á hvaða verki og hve lengi. Aldrei tíma annarra.

Færsla með beiðni um breytingu sem bíður svars stjórnanda

Gleymdist að stimpla út?

Starfsmaðurinn biður um leiðréttingu og skrifar athugasemd. Tímarnir breytast ekki fyrr en stjórnandi svarar.

Formið Skrá tíma: verk, upphaf og lok

Vaktin þar sem appið var ekki með

Tímar skráðir eftir á, allt að viku aftur, gilda eins og stimplaðir. Eldri tímar fara í samþykkt.

Tilkynningar: breyting samþykkt, stjórnandi skráði vinnustundir

Svarið kemur í appið

Þegar stjórnandi samþykkir, hafnar eða lagar skráningu fær starfsmaðurinn að vita það strax.

Fyrir stjórnendur

Í vafranum sér stjórnandi allt fyrirtækið: hvert tíminn fer, hvað hann kostar og hvað bíður svars.

Vinnustundir fyrirtækisins: dagvinna, eftirvinna, næturvinna, neysluhlé og laun fyrir eitt launatímabil

Launatímabilið, tilbúið

Skjárinn opnast á launatímabili fyrirtækisins. Dagvinna, eftirvinna og næturvinna eru reiknuð eftir reglu fyrirtækisins, neysluhlé dregið frá og launin lögð saman, fyrir alla eða einn starfsmann í einu.

Stjórnandi leiðréttir skráningu starfsmanns beint á vinnustundaskjánum

Lagað á staðnum

Stjórnandi leiðréttir skráningu, stimplar út þann sem gleymdi og skráir tíma fyrir starfsmann. Allt skráð í breytingasöguna og starfsmaðurinn látinn vita.

Samþykktarbeiðnir: tvær beiðnir í bið með hnöppunum Samþykkja og Hafna

Beiðnir á einum stað

Það sem starfsfólk biður um að breyta bíður hér þar til stjórnandi samþykkir eða hafnar. Upprunalegu tímarnir eru alltaf geymdir.

Launastillingar starfsmanns: tímakaup í dagvinnu, eftirvinnu og næturvinnu

Starfsfólk og tímakaup

Hver starfsmaður fær sinn aðgang og sitt tímakaup í dagvinnu, eftirvinnu og næturvinnu. Fyrirtækið velur hvort yfirvinna ræðst af unnum tímum eða klukkunni.

Verk: hvert verk tilheyrir viðskiptavini og hefur sitt tímagjald

Viðskiptavinir og verk

Hvert verk tilheyrir viðskiptavini og getur haft sitt eigið tímagjald fyrir reikningagerð. Verk sem er lokið heldur tímunum sínum en safnar ekki nýjum.

Excel-skjal með vinnustundum eins starfsmanns, samtölum, neysluhléi og launum

Beint í Excel

Eitt blað fyrir alla og eitt á hvern starfsmann, með samtölum neðst. Dagsetningar og tölur eru alvöru reitir, ekki texti, svo skjalið er tilbúið fyrir launakerfið.

Fyrir hverja?

  • Iðnaðarmenn og verktakar sem vinna fyrir marga viðskiptavini í einu.
  • Þjónustufyrirtæki og ráðgjafar sem rukka í tímavinnu.
  • Fyrirtæki með starfsfólk á ferðinni eða á mörgum stöðum.
  • Stjórnendur sem eru búnir að fá nóg af tímaskýrslum í Excel og á miðum.
Í Pilot

Hafðu samband fyrir verð

Snappy er nú í Pilot-prófunum með fyrstu viðskiptavinunum. Hafðu samband og við finnum verð og útfærslu sem hentar þér. Fyrstu notendurnir fá að móta vöruna með okkur.

Hafðu samband

Viltu vita meira um Snappy eða fá verð? Sendu okkur línu eða hringdu, við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.

Sími:

895 8854

Staðsetning:

Hvannalundur 4, 210 Garðabæ