Svona virkar QRSummerhouseMap
Engin fleiri símtöl frá gestum sem keyra hring eftir hring í myrkrinu.
Kort af svæðinu
Við útbúum smellanlegt kort af sumarhúsabyggðinni með öllum húsum og aðstöðu.
QR-skilti og tenglar
QR-skilti fara við innkeyrslu og gatnamót, og hvert hús fær sinn eigin tengil sem má senda gestum fyrirfram.
Gesturinn finnur húsið
Gesturinn skannar eða smellir og sér strax á kortinu hvar húsið hans er. Ekkert app þarf.
Eiginleikar
Betri upplifun gesta frá fyrstu mínútu, og minna álag á umsjónarfólk.
Smellanlegt kort
Skýrt kort af svæðinu þar sem hvert hús er merkt og auðvelt að finna.
QR-skilti á svæðinu
Skilti við innkeyrslu og gatnamót vísa gestum beint á kortið.
Tengill á hvert hús
Sendu tengilinn með bókunarstaðfestingunni svo gesturinn viti hvert hann á að fara áður en hann leggur af stað.
Aðstaða á kortinu
Sýndu heita potta, sorpgáma, leiksvæði og aðra aðstöðu á sama korti.
Virkar í öllum símum
Opnast í vafra símans. Gestir þurfa ekki að sækja neitt app.
Einföld umsjón
Uppfærðu hús, skilti og aðstöðu á einum stað þegar eitthvað breytist.
Fyrir hverja?
- Orlofshúsabyggðir stéttarfélaga og starfsmannafélaga.
- Ferðaþjónustuaðilar og leigusalar með mörg hús á sama svæði.
- Sumarhúsafélög sem vilja auðvelda gestum og þjónustuaðilum að rata.
- Tjaldsvæði og hótel með smáhýsum eða dreifðri gistingu.
Hafðu samband fyrir verð
QRSummerhouseMap er nú í Pilot-prófunum með fyrstu viðskiptavinunum. Hafðu samband og við finnum verð og útfærslu sem hentar þér. Fyrstu notendurnir fá að móta vöruna með okkur.
Aðrar vörur frá 1707
Hafðu samband
Viltu vita meira um QRSummerhouseMap eða fá verð? Sendu okkur línu eða hringdu, við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.